image image
MCI fer til Góa á Indlandi Söfnunin fyrir ferðina hefur gengið vonum framar - okkur vantar þó aðeins uppá til þess að ná endum samann.  Við erum aðeins 250.000.kr frá settu marki.  Fjöldi einstaklinga og fyrirtækja hefur verið okkur innan handa í söfnunni og biðjum við þeim öllum Guðs blessunar.  Ekki má gleyma öllum Hvítasunnukirkjunum sem hafa gefið rausnalega til ferðarinnar.  Við segjum Takk Takk Takk...  reiknisnúmer söfnunarinnar er 301-26-471089 - kennitala er 471088-2429
Orkan Í fyrra hófum við styrktarsöfnun fyrir trúboðsferð skólans til Kongó í Afríku með hjálp Orkunnar.  Það var mikil blessun og með þinni hjálp þá náðum við að safna um 400.000 kr fyrir Kongóferðinni.   í ár er ferðinni heitið til Goa á Indlandi.  Þar er stefnt á vakningasamkomur og hjálparstarf meðal fátækra barna. Skráðu þig í hópinn hér.

Hjálparstarf og Kristniboð

Á hverju ári fara nemendur og starfsmenn MCI dagskóla í hjálparstarfs- og/eða kristniboðsferð til útlanda. Hér fyrir neðan má sjá ferðasögu fyrir hverja ferð sem farin hefur verið:

Kongo
Albania
Bangladesh
Burkina08
Estonia
PAKISTAN07
Pakistan06
Paraguay
Burkina04

Fréttir og pistlar

Vinir skólans

vinir_skolans

Vinir skólans er hópur fólks sem stendur á bak við skólann. Vinir skólans hafa stutt skólann með bæn, gjöfum, fjármagni og þjónustu. Við bjóðum alla nýja vini skólans velkomna.

Vinir skólans gegna veigamiklu hlutverki fyrir framtíð skólans. Með því að efla vini skólans fáum við tækifæri til að bæta starfsmannahald og kynningar á skólanum svo um munar. Vinir skólans gera okkur einnig kleift að halda áfram með hugsjónina okkar: að þjálfa upp unga einstaklinga sem þrá að þekkja Guð og gera hann þekktan.


Lesa meira


 

Kvöldskóli FHK Vor 2012

Nám í kvöldskóla á vorönn 2012 hefst miðvikudaginn 11. Janúar 2012. Þrjú námskeið verða í boði á vorönn:

BIB 103 Nýja Testamentið

GFR 103 Trúfræði

SIÐ 102 Að leysa vandamál lífsins

Sjá stundatöflu hér

Umsókn um kvöldskóla

HÉR getur þú sótt umsókn um nám í kvöldskóla FHK.

Umsókninni skal skilað til stjórnenda skólans. Senda má umsóknina með tölvupósti á netfangið erdna@mci.is eða senda umsóknina á skrifstofu skólans:

Fræðslumiðstöð Hvítasunnukirkjunnar
Völvufelli 11
111 Reykjavík